Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark í sauðfé
Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verður haldinn í byrjun nóvember 2021. Verð fyrir innleyst greiðslumark er núvirt andvirði beingreiðslna næstu tveggja almanaksára, kr. 13.396,- pr. ærgildi.
Það greiðslumark sem er innleyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði.
Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að 100% þess greiðslumarks sem er í boði á markaði, þar af 60% til þeirra sem eiga 200 kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,6 eða hærra. Það skiptist hlutfallslega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa.
Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar beingreiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetningshlutfall.
Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til framleiðenda í forgangshópi skal boðið öðrum umsækjendum.
Hver framleiðandi getur ekki fengið hærri úthlutun en sem nemur því að heildarfjöldi ærgilda eftir úthlutun fari ekki yfir 600.
Með beiðni um innlausn á greiðslumarki skal fylgja veðbókarvottorð ásamt staðfestingu á eignarhaldi að lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu. Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslumark frá og með 1. janúar 2022.
Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Opnað hefur verið fyrir tilboð.
Tilboðsfrestur er til og með 1. nóvember nk.