Embætti forstjóra Landspítala laust til umsóknar
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.
Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á sjötta þúsund starfsmenn og er spítalinn einn stærsti vinnustaður landsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur.Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannaforráð, sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
- Reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýunga er skilyrði.
- Skýr framtíðarsýn.
- Þekking á sviði heilbrigðisþjónustu.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
- Góð kunnátta í ensku og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1.mars 2022.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri, [email protected]
Umsóknir með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf og afrit af prófskírteinum skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum ráðningarkerfi ríkisins eða á netfangið: [email protected] eigi síðar en 1. nóvember nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.11.2021
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Valdimarsdóttir - [email protected]
(Auglýsingin hefur einnig verið birt á vefnum www.starfatorg.is)