Fundir forsætisráðherra á COP26
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti fjölda tvíhliða funda með erlendum þjóðarleiðtogum á loftslagsráðstefnunni í Glasgow. Hún fundaði með Zuzönu Caputovu, forseta Slóvakíu, Gitanas Nauséda, forseta Litháen, Sadyr Japarov, forseta Kyrgyzstan, og með Egils Levits, forseta Lettlands.
Forsætisráðherra átti einnig fundi með Lazarus Chakwera, forseta Malaví og Alberto Fernández forseta Argentínu og ræddi við fjölda annarra leiðtoga í tengslum við fundinn.
Forsætisráðherra tók einnig þátt í hliðarviðburði norrænna forsætisráðherra um grænar fjárfestingar, þar sem m.a. var greint frá þeirri fyrirætlan íslenskra lífeyrissjóða að fjárfesta fyrir um 580 milljarða króna í grænum verkefnum. Þá fundaði forsætisráðherra með leiðtogum frá WEGo samstarfsríkjunum (WellBeing Economy Governments) þar sem rætt var stefnumörkun og reynslu ríkjanna af velsældaráherslum og áherslur í samstarfinu framundan.Forsætisráðherra fór síðdegis í gær frá Glasgow til Kaupmannahafnar þar sem hún situr nú fund Norðurlandaráðs.