Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, tekur við embætti
Guðmundur Ingi Guðbrandsson tók við embætti félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra í dag þegar hann tók formlega við lyklum að ráðuneytinu úr höndum Ásmundar Einars Daðasonar, fráfarandi félags- og barnamálaráðherra.
Guðmundur Ingi sagði við þetta tækifæri að hann ætli að setja kjör öryrkja og aldraðra á oddinn, ásamt kjaramálum. Hann segir að hann vilji halda áfram þeirri vinnu að einfalda kerfið. Það sé of flókið og í stað þess þarf að koma kerfi sem grípur einstaklinga sem ekki geta séð sér farborða með atvinnuþátttöku.
Nýr stjórnarsáttmáli annars ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra var kynntur í gær. Í sáttmálanum er meðal annars lögð áhersla á að málefni örorkulífeyrisþega verði tekin til endurskoðunar á kjörtímabilinu með það að markmiði að bæta lífskjör og lífsgæði fólks með skerta starfsorku. Sérstaklega verður horft til þess að bæta afkomu og möguleika til virkni, menntunar og atvinnuþátttöku á eigin forsendum.