Hoppa yfir valmynd
13. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

Bóluefnasamstarf og mikilvægi menntunar rædd á ráðherrafundi

Þróunarsamvinnuráðherrar Norðurlanda hittust á sérstökum fjarfundi í dag og ræddu mikilvægi menntunar á átaka- og hamfarasvæðum, áhrif heimsfaraldursins á skólagöngu barna í þróunarríkjum og þýðingu skólamáltíða. Framlag Norðurlandanna til bóluefnasamstarfs var ofarlega á baugi og áskoranir tengdar framleiðslu og dreifingu bóluefnanna í þróunarríkjum. Þá voru réttindi fatlaðs fólks í þróunarríkjum og staðan í Eþíópíu einnig til umræðu.

„Það verður að vera forgangsverkefni í alþjóðastarfi að tryggja bóluefni handa heilbrigðisstarfsfólki, öldruðum og öðrum viðkvæmum hópum, líkt og við gerðum þegar við fengum aðgengi að bóluefni fyrir ári síðan,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, meðal annars á fundinum. „Bóluefni er, engu að síður, aðeins hluti af jöfnunni. Við þurfum einnig að horfa til víðtækari eflingar heilbrigðiskerfa. Viðbrögð við heimsfaraldrinum mega ekki vera á kostnað annars bólusetningarstarfs gegn öðrum sjúkdómum eða annarar heilbrigðisþjónustu.“

Auk Þórdísar Kolbrúnar sóttu fundinn Anne Beathe Tvinnereim, þróunarmálaráðherra Noregs, Flemming Møller Mortensen, þróunarmálaráðherra Danmerkur, Matilda Ernkrans, þróunarmálaráðherra Svíþjóðar og Ville Skinnari, þróunarmálaráðherra Finnlands, sem stýrði fundinum en Finnar fara nú með formennsku í samstarfi Norðurlandanna.

 

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll
2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta