Fréttaannáll forsætisráðuneytisins 2021
Starfsemi forsætisráðuneytisins á nýliðnu ári einkenndist eins og árið áður af baráttunni gegn heimsfaraldri COVID-19. Stjórnvöld brugðust við stöðunni með fjölbreyttum aðgerðum þar sem forsætisráðuneytið gegndi meðal annars samhæfingarhlutverki.
Loftslagsmálin voru einnig í brennidepli á árinu. Ísland sendi Sameinuðu þjóðunum í febrúar uppfærð markmið um aukinn samdrátt í losun og þá var tilkynnt um aukin framlög stjórnvalda til loftslagsmála á komandi árum. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fór fram í Glasgow í byrjun nóvember þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra grein fyrir markmiðum og aðgerðum Íslands.
Ísland var í efsta sæti Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti tólfta árið í röð og á árinu stóð forsætisráðuneytið fyrir alþjóðlegri ráðstefnu gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi. Þá tók nýr samráðsvettvangur um jafnréttismál til starfa á árinu sem og aðgerðahópur um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði.
Forsætisráðherra fundaði með utanríkisráðherrum Bandaríkjanna og Rússlands í maí í tengslum við fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík og heimsótti forseta Frakklands í byrjun júlí.
Fjölmörg önnur verkefni voru unnin í ráðuneytinu á nýliðnu ári. Má þar nefna viðbrögð við skriðuföllum á Seyðisfirði, birting nýrra mælikvarða um hagsæld og lífsgæði og móttöku flóttafólks frá Afganistan.
Ný ríkisstjórn tók við völdum í lok nóvember og gegnir Katrín Jakobsdóttir áfram starfi forsætisráðherra.