Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mælt fyrir frumvarpi um veitingastyrki á Alþingi

Mælt var fyrir frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma vegna Covid-19 á Alþingi í dag. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að einstakir rekstraraðilar geti fengið að hámarki um 10-12 milljóna styrk á fjögurra mánaða tímabili.

Fyrirhugaðir veitingastyrkir fela í sér áframhaldandi stuðning við mikilvæga atvinnugrein sem hefur orðið fyrir tjóni vegna sóttvarnartakmarkana síðustu vikur. Úrræðin í frumvarpinu byggjast í öllum meginatriðum á grunni viðspyrnustyrkja sem veittir voru á síðasta ári en eru sérsniðin að veitingarekstri, sem hefur sætt takmörkunum umfram flestar atvinnugreinar.

Getur numið 90% af rekstrarkostnaði fyrir hvern almanaksmánuð

Lagt er til að rekstraraðilar veitingastaða sem hafa orðið fyrir minnst 20% tekjufalli í almanaksmánuði frá desember 2021 til mars 2022, vegna takmarkana á opnunartíma, geti fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði á tímabilinu. Úrræðið er ekki bundið við fyrirtæki með langa rekstrarsögu, heldur er gert ráð fyrir að veitingastaðir sem opnuðu í fyrra geti notið úrræðisins - að því gefnu að önnur skilyrði laganna séu uppfyllt.

Styrkurinn getur numið 90% af rekstrarkostnaði þann almanaksmánuð sem umsókn varðar, en ekki hærri fjárhæð en nemur tekjufalli rekstraraðila viðkomandi mánuð. Styrkurinn getur jafnframt ekki orðið hærri en að 500 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi á mánuði á tímabilinu og allt að 2,5 m.kr. á mánuði ef tekjufall var 20-60% en allt að 600 þús.kr. fyrir hvert stöðugildi og allt að 3 m.kr. á mánuði ef tekjufall var meira en 60%. Samanlagðir styrkir til einstakra rekstraraðila vegna tímabilsins alls geta því að hámarki orðið 10 til 12 m.kr.

Samkvæmt frumvarpinu þurfa umsækjendur að uppfylla skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksumsvif, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og um að vera ekki í gjaldþrotameðferð.

Líkt og gildir um lokunar-, tekjufalls- og viðspyrnustyrki er lagt til að bæði umsóknar- og ákvörðunarferli vegna styrkjanna verði rafrænt og að framkvæmdin verði falin Skattinum.

Gott samtal við fulltrúa fyrirtækja í veitingarekstri

Frumvarpið sem mælt var fyrir í dag byggist m.a. á góðu samtali fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fulltrúa fyrirtækja í veitingarekstri, en alls hafa fyrirtæki í greininni fengið um 11 milljarða króna í beina styrki frá hinu opinbera vegna faraldursins. Með áframhaldandi stuðningi er markmiðið, eins og áður, að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta