Skýrsla um alþjónustu í póstdreifingu
Starfshópur, sem Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skipaði í ágúst að ósk Alþingis um málefni póstþjónustu og alþjónustu í póstdreifingu hefur í nýrri skýrslu lagt fram fjórar megintillögur til að mæta breyttum aðstæðum á póstmarkaði á Íslandi. Markmið tillagnanna er að draga úr alþjónustubyrði ríkissjóðs um leið og allir landsmenn fái notið póstþjónustu á viðunandi verði.
Alþingi samþykkti í fyrra breytingar (lög nr. 76/2021) á lögum um póstþjónustu en í bráðabirgðaákvæði breytingalaganna var ráðherra falið að skipa þverfaglegan starfshóp, m.a. til að greina tækifæri til að lækka kostnað ríkissjóðs af póstþjónustu (alþjónustukostnað) og útfæra tillögur sem tryggja að allir landsmenn fái notið póstþjónustu og greiði fyrir hana viðunandi verð. Starfshópurinn tók til starfa í ágúst og skilaði áfangaskýrslu í september. Lokaskýrsla hópsins hefur verið send umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til frekari skoðunar og umfjöllunar.