Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2021

Merki Kuðungsins - mynd

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2021. Kuðungurinn verður afhentur i tengslum við Dag umhverfisins.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 25. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Á síðasta ári hlaut Íslandsbanki viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2020.

Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta