Hoppa yfir valmynd
4. mars 2022 Matvælaráðuneytið

Endurútgefið burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (nú matvælaráðuneytið) í samvinnu við Hafrannsóknastofnun kynnti tillögu að burðarþolsmati og áhættumati erfðablöndunar ásamt umhverfismatsskýrslu  í samráðsgátt, 25. október 2021 og á heimasíðu Skipulagsstofnunar, 27. október 2021.  Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar   var til og með 8. desember 2021.

Á kynningartímabili bárust sjö umsagnir gegnum samráðsgátt stjórnvalda. Ráðuneytið, í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun, hefur yfirfarið umsagnir og brugðist við ábendingum með breytingum á umhverfismatsskýrslunni þar sem við átti. Niðurstaða umhverfismatsins leiðir ekki til breytinga á burðarþolsmati og áhættumati Hafrannsóknastofnunar. Áhættumat erfðablöndunar er því  það sama og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra staðfesti  í júní 2020. Burðarþol þeirra tíu fjarða sem Hafrannsóknastofnun hefur nú þegar metið á tímabilinu 2015-2019 er einnig samhljóða fyrri niðurstöðum sem kynntar voru á heimasíðu stofnunarinnar. Í umhverfismatsskýrslu sem og í áætlununum sjálfum eru útlistaðar mótvægis- og vöktunaraðgerðir vegna mögulegra neikvæðra umhverfisáhrifa.

Með þessari auglýsingu fylgja endanlegar áætlanir fyrir áhættumat erfðablöndunar og burðarþolsmöt ásamt uppfærðri umhverfismatsskýrslu, viðbragðaskjali og samantekt.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta