Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2022 Utanríkisráðuneytið

Opinber framlög til þróunarsamvinnu í sögulegu hámarki

Annað árið í röð náðu opinber framlög til þróunarsamvinnu í heiminum sögulegu hámarki. Þau námu 179 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta ári og hækkuðu um 4,4 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í nýútgefnum tölum frá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) um opinber framlög til þróunarsamvinnu árið 2021.

Þessa þróun má að miklu leyti rekja til aukinna framlaga í tengslum við aðgerðir vegna útbreiðslu COVID-19 faraldursins og dreifingu bóluefna í þróunarríkjum. Þannig námu framlög OECD ríkjanna til bóluefnaaðstoðar vegna COVID-19 alls 6,3 milljörðum Bandaríkjadala, eða því sem nemur 3,5 prósentum af heildarframlögum til þróunarsamvinnu. Þá nema heildarframlög í tengslum við viðbrögð vegna COVID-19 um 18,7 milljörðum Bandaríkjadala, sem þýðir að 10,5 prósent af opinberum framlögum til þróunarsamvinnu á síðasta ári fóru í viðbrögð vegna faraldursins.

„OECD ríkin hafa enn og aftur sýnt að jafnvel á krepputímum munu þau stíga upp og veita fátækari ríkjum og fólki stuðning,“ sagði Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, þegar tölurnar voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Hann sagði að átak síðustu ára hafi verið mikilvægt skref í því að auka stuðning við fátækari ríki, en þar megi ekki láta staðar numið. Heimurinn standi nú frammi fyrir nýrri mannúðarkrísu með tilefnislausri árás Rússlands á Úkraínu, en þróunarríki verði verst fyrir barðinu á minna framboði og hærra verði á matvælum og helstu hrávörum.

Ísland er á meðal þeirra ríkja þar sem framlög til þróunarsamvinnu hækkuðu hlutfallslega mest á milli ára, eða um 11,7 prósent. Aukningin var mest á Ítalíu (34,5 prósent), í Suður-Kóreu (20,7 prósent) og Slóveníu (19 prósent). Þá náðu fimm ríki viðmiði Sameinuðu þjóðanna um að veita því sem nemur 0,7 prósent af vergum þjóðartekjum til þróunarsamvinnu; Danmörk, Þýskaland, Lúxemborg, Noregur og Svíþjóð.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta