Hoppa yfir valmynd
13. júní 2022 Matvælaráðuneytið

Fyrstu gæludýr flóttamanna frá Úkraínu koma til landsins

Tekið verður á móti tveimur hundum á nýrri einangrunarstöð Matvælastofnunar í dag og eru þeir fyrstu gæludýrin í eigu flóttafólks frá Úkraínu sem tekið er á móti. Von er á fleiri dýrum á komandi vikum.

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, veitti undanþágu í mars til að flóttafólk frá Úkraínu gæti tekið á móti gæludýrum sínum að lokinni nauðsynlegri einangrun, bólusetningum og meðhöndlun.

Eftir breytingar uppfyllir einangrunarstöðin nú nauðsynleg skilyrði og getur tekið á móti fjórum köttum og 22 hundum. Þegar er búið að gefa út innflutningsleyfi og munu flest dýranna þurfa a.m.k. þriggja mánaða einangrun.

Eftir komu dýranna fer fram ítarleg læknisskoðun innan þriggja daga, sýnatökur og bólusetningar eins og kveðið er á um í reglugerð.

Auk þess að sinna fóðrun, þrifum, smitvörnum og eftirliti með heilsufari er mikil áhersla lögð á að starfsfólk stöðvarinnar verji tíma með hverju dýri.

„Það er góð tilhugsun að gæludýraeigendur frá Úkraínu geti nú átt endurfundi við dýrin sín eftir þær miklu raunir sem bæði menn og dýr hafa þurft að þola,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

 


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta