Hoppa yfir valmynd
15. júní 2022 Utanríkisráðuneytið

Sameiginleg yfirlýsing varnarmálaráðherra þátttökuríkja í JEF

Frá ráðherrafundi JEF í Ósló - myndForsvaret

Staða og horfur í öryggis- og varnarmálum í Evrópu vegna innrásar Rússlands í Úkraínu voru efst á baugi á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra þátttökuríkja í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (Joint Expeditionary Force, JEF) sem lauk í Ósló í dag. Á fundinum fór einnig fram viðbragðsæfing þar sem reynt var á ákvarðanatökuferla og viðbrögð ríkjanna við aðstæður þar sem öryggi þeirra væri ógnað.  

Sameiginleg yfirlýsing var gefin út af fundinum þar sem stuðningur ríkjanna við aðildarumsókn Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu er undirstrikaður og vilji þeirra til að efla samstarf á vettvangi JEF.

Bryndís Kjartansdóttir skrifstofustjóri öryggis- og varnarmálaskrifstofu sat fundinn af Íslands hálfu. 

JEF er samstarfsvettvangur líkt þenkjandi Norður-Evrópuríkja um öryggis- og varnarmál með áherslu á norðurslóðir, Norður-Atlantshafið og Eystrasaltið. Samstarfinu er ætlað að geta brugðist skjótt við hvers kyns aðstæðum á friðar-, hættu- og ófriðartímum, og stutt við annað fjölþjóðasamstarf, svo sem á vegum Atlantshafsbandalagsins. Þátttökuríkin eiga jafnframt reglubundið og virkt öryggispólitískt samráð. Bretland leiðir samstarfið sem Öll Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland eru aðilar að, auk Bretlands. 

  • Frá ráðherrafundi JEF í Ósló - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta