Ísland tekur þátt í 15. ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um framkvæmd samnings um réttindi fatlaðs fólks
Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, flutti fyrir hönd Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, rafrænt ávarp á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um framkvæmd samnings S.Þ. um réttindi fatlaðs fólks sem haldinn var í New York 14 – 16 júní.
Á hverju ári kalla Sameinuðu þjóðirnar eftir samráði við öll aðildarríki þar sem ríkin eru beðin um að gera grein fyrir framvindu samningsins. Í ávarpi sínu fór Þór yfir framgang samningsins hér á landi og næstu skref í framkvæmd hans. Fulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins gerði síðast grein fyrir framkvæmd samningsins á Allsherjarþinginu í júní 2019. Vegna Covid-19 faraldursins var ráðstefnan ekki haldin árin 2020 og 2021 en ráðuneytið sendi inn greinagerð þar sem gerð var grein fyrir stöðu mála.