Úthlutun styrkja vegna móttöku barna á flótta
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lokið úthlutun styrkja til sveitarfélaga vegna móttöku barna á flótta. Stuðningurinn var veittur tímabundið til að styðja við fjölbreytt tómstunda- og menntunarúrræði fyrir börnin og undirbúning skólastarfs í haust.
Sveitarfélögum var boðið að sækja um fjárhagslegan stuðning fyrir allt að 200.000 kr. til handa hverju barni á aldrinum 0–18 ára. Mennta- og barnamálaráðuneytið tók við umsóknunum og úthlutaði styrkjum í tveimur lotum; fyrri úthlutun átti sér stað í maí og sú síðari í dag. Heildarstuðningur til sveitarfélaga nemur rúmlega 40 milljónum króna.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra:
„Hugmyndin með stuðningnum var ekki eingöngu að gera sveitarfélögum kleift að taka á móti auknum fjölda barna á flótta heldur einnig að stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu og brúa bilið þar til þau komast í skóla. Það var ánægjulegt að sjá viðbrögð sveitarfélaganna sem buðu börnunum upp á fjölbreytta dagskrá í sumar. Leggjumst öll á eitt við að tryggja farsæld þessara barna.“
Sveitarfélögin hafa boðið börnunum upp á fjölbreytt úrræði svo sem námskeið í íslensku, mynd-, leik- og tónlist, föndri, íþróttum og lífsleikni. Sumarskólar, frístund og fjölsmiðjur tóku á móti börnunum. Þá fengu þau víða sundkort og aðgang að margvíslegum íþróttaæfingum.