Drög að frumvarpi um breytingu á raforkulögum til kynningar í samráðsgátt
Umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003.
Frumvarpinu er ætlað að skýra lagaheimild dreifiveitna til að innheimta viðbótarkostnað sem tenging nýs viðskiptavinar hefur í för með sér svo hann falli ekki á aðra notendur dreifikerfis. Þannig er stefnu raforkulaga um gegnsæi í gjaldskrármálum og jafnræði notenda raforkukerfisins framfylgt.
Sambærileg heimild er til staðar í lögunum fyrir tengingar flutningskerfis og er því með frumvarpinu, verði það að lögum, gætt samræmis í raforkukerfinu öllu varðandi heimild til innheimtu viðbótarkostnaðar.
Frestur til að skila inn umsögnum um frumvarpsdrögin er til og með 27. september 2022.
Drög að frumvarpi um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003 (viðbótarkostnaður)