Sex sóttu um stöðu lögreglustjóra á Vestfjörðum
Sex sóttu um embætti lögreglustjóra á Vestfjörðum sem dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar nýverið. Umsækjendur eru eftirtaldir í stafrófsröð:
Einar Thorlacius lögfræðingur
Gísli Rúnar Gíslason deildarstjóri/lögfræðingur
Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari
María Káradóttir aðstoðarsaksóknari
Sigurður Hólmar Kristjánsson aðstoðarsaksóknari
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn og er miðað við að skipað verði í embættið frá og með 1. nóvember 2022. Sérstakri hæfnisnefnd er falið að fara yfir umsóknirnar og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda.