Hringdi bjöllunni þegar Ísland færðist upp um gæðaflokk
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hringdi kauphallarbjöllunni í morgun þegar íslenski hlutabréfamarkaðurinn færðist upp um gæðaflokk hjá alþjóðlega vísitölufyrirtækinu FTSE Russell. Kauphöllin fagnaði áfanganum með bjölluathöfn.Við opnun markaða í morgun færðist Ísland upp um gæðaflokk hjá vísitölufyrirtækinu FTSE Russell í flokk nýmarkaðsríkja (e. Secondary Emerging markets). Lilja, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar og Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland hringdu af því tilefni fyrstu viðskipti dagsins inn við athöfn í Kauphöllinni
Í dag, 19. September 2022, tók nýja flokkunin gildi en Ísland er þá í flokki nýmarkaðsríkja (e. Secondary Emerging Markets) hjá FTSE Russell. Búast má við því að með þessari flokkun Íslands verði hægt að greiða fyrir innflæði verulegs fjármagns inn í íslenskt efnahagslíf sem getur stutt við fjármögnunarmöguleika skráðra fyrirtækja.
,,Breið þátttaka almennings í hluta- og skuldabréfamörkuðum styður við fjárfestingar í innviðum, nýsköpun og tækniframförum. Það er því ánægjulegt að sjá þessa hækkun á milli fjárfestingaflokka hér í Kauphöllinni. Legg þó áherslu á að sígandi lukka er best og að innflæði beinnar erlendar fjárfestingar aukist jafnt og þétt,” segir Lilja.
Menningar- og viðskiptaráðherra lagði áherslu á mikilvægi fjárfestinga í samfélögum, sem einn helsta drifkraftinn í framförum. Fjárfestingastig þjóða segir mikið til um hvernig framtíðin lítur út og því þurfum við alltaf að vera á táum að fjárfest sé næginlega í meðal annars innviðum, menntun og hátækni.
15 félög fá öll sæti í vísitölunni í dag, en Ísland verður tekið inn í þremur skrefum. Fyrsta skrefið var tekið í morgun, þriðjungur af væginu verður tekið inn í desember og lokaþriðjungurinn í mars.