Ráðherra flytur erindi í tilefni jafnlaunadagsins – viðburður á vegum Íslands og OECD
Alþjóðlegi jafnlaunadagurinn var á sunnudag en Ísland átti frumkvæði að því að koma honum á laggirnar hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir þremur árum. Í tilefni dagsins mun Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, halda erindi á viðburði á morgun, þriðjudag, sem sendiráð og fastanefnd Íslands í París hafa skipulagt ásamt OECD. Viðburðurinn fer fram á netinu og öll þau sem vilja geta skráð sig og fylgst með.
Sambærilegur viðburður fór fram á jafnlaunadeginum í fyrra og sköpuðust góðar umræður.
Í þetta sinn verður sjónum beint að fæðingarorlofi og jafnrétti og munu eftirfarandi gestir flytja ávörp og taka þátt í umræðum:
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra á Íslandi
- Jan Tinetti, innanríkisráðherra og ráðherra jafnréttismála á Nýja-Sjálandi
- Manuel Lobo Antunes, sendiherra Portúgals hjá OECD
- Matthias Cormann, framkvæmdastjóri OECD
- Ulrik V. Knudsen varaframkvæmdastjóri OECD
- Putri Realita hjá fyrirtækinu Danone sem er með 100.000 starfsmenn á heimsvísu
- Tomoko Hasegawa frá samtökum atvinnurekenda í Japan
Unnur Orradóttir-Ramette, sendiherra Íslands í París, flytur opnunarávarp, auk þess sem rýni OECD í málaflokknum verður kynnt á fundinum.
Viðburðurinn fer fram kl. 08:00-09:30 að íslenskum tíma og fer sem fyrr segir fram þriðjudaginn 20. september.