Innlausnarmarkaður 2022 með greiðslumark í sauðfé.
Markaður fyrir greiðslumark í sauðfé verður haldinn í nóvember 2022.
Umsóknum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Opnað hefur verið fyrir umsóknir.
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 1. nóvember.
Nánari upplýsingar um markaðinn s.s. um forgang við úthlutun má finna á afurd.is.