Þingmannanefnd um málefni barna
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað þingmannanefnd um málefni barna árin 2022-2025. Nefndin vinnur að endurskoðun lagaumhverfis og stefnumótun í málefnum barna og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Nefndin var fyrst skipuð árið 2018 og er nú endurskipuð til næstu þriggja ára. Þingflokkum gafst kostur á að tilnefna tvo þingmenn í nefndina, aðalmann og varamann, en auk fulltrúa allra þingflokka var jafnframt óskað eftir áheyrnarfulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þingmannanefndin er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður nefndarinnar, tilnefnd af Framsóknarflokknum
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir, tilnefnd af Sjálfstæðisflokknum
- Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, tilnefnd af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði
- Eyjólfur Ármannsson, tilnefndur af Flokki fólksins
- Gísli Rafn Ólafsson, tilnefndur af Pírötum
- Guðbrandur Einarsson, tilnefndur af Viðreisn
- Helga Vala Helgadóttir, tilnefnd af Samfylkingunni.
Varamenn:
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir, tilnefnd af Flokki fólksins
- Jóhann Friðrik Friðriksson, tilnefndur af Framsóknarflokknum
- Kári Gautason, tilnefndur af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði
- Oddný G. Harðardóttir, tilnefnd af Samfylkingunni
- Vilhjálmur Árnason, tilnefndur af Sjálfstæðisflokknum
- Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, tilnefnd af Viðreisn.
Með hópnum starfa sérfræðingar mennta- og barnamálaráðuneytisins og er þar Silja Stefánsdóttir starfsmaður nefndarinnar. Áheyrnarfulltrúi er Svandís Ingimundardóttir f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga.