Hoppa yfir valmynd
14. október 2022 Utanríkisráðuneytið

Fiskveiðisamningur við Færeyjar undirritaður

Þórdís Kolbrún og Jenis av Rana undirrita samninginn - myndutanríkisráðuneytið

Rammasamningur um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja var undirritaður í utanríkisráðuneytinu í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Jenis av Rana, utanríkis- og menningarmálaráðherra Færeyja, skrifuðu undir samninginn.

Undirritunin fór fram á fundi ráðherranna þar sem samskipti landanna á breiðum grundvelli voru til umfjöllunar, meðal annars út frá tillögum í skýrslu frá starfshópi frá september 2021, um samskipti Íslands og Færeyja og tillögur til framtíðar.

Rammasamningurinn mælir fyrir um breytingar á núverandi samningsframkvæmd ríkjanna um að hverfa frá gerð árlegs bréfskiptasamnings um fiskveiðar í lögsögu ríkjanna, sem lagður hefur verið fyrir Alþingi á hverju haustþingi. Framvegis, eftir að samningurinn hefur verið fullgiltur, verður heimilt að semja um þessi fiskveiðiréttindi, sem og önnur skyld atriði, á samráðsfundum ríkjanna. Þeir verða haldnir árlega á grundvelli heimildar í rammasamningnum. Viðræður milli ríkjanna um breytta framkvæmd hafa staðið yfir um nokkurra ára skeið. Í rammasamningnum leggja ríkin áherslu á áframhaldandi nána samvinnu í tengslum við fiskveiðar og að tryggja áfram ábyrgar fiskveiðar, verndun og sjálfbæra nýtingu lifandi sjávarauðlinda til lengri tíma.

Þau Þórdís Kolbrún, Jenis av Rana og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, áttu einnig fund öll saman í utanríkisráðuneytinu síðdegis þar sem utanríkisráðherra lagði ríka áherslu á mikilvægi samvinnunnar við næstu nágranna okkar. Á fundinum upplýstu ráðherrarnir sömuleiðis um gang mála í viðskiptum og menningarsamvinnu.

„Samskipti Íslands við Færeyjar og Grænland er bæði mikil og traust og í þeim felast fjölmörg tækifæri til að þróa enn frekar eins og fram kemur í nýlegum skýrslum þar sem nýir samstarfsfletir eru kortlagðir. Það er mín ósk að frekari innleiðing markmiða um aukna samvinnu þjóðanna muni ganga hratt og örugglega fyrir sig. Samband okkar við þessa næstu nágranna er okkur afar mikilvægt,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

Þá funduðu þær Þórdís Kolbrún og Vivian Motzfeldt um samskipti Íslands og Grænlands. Þar var meðal annars til umræðu nýundirrituð samstarfsyfirlýsing Íslands og Grænlands og samstarf á sviði loftslagsmála, viðskipta, heilbrigðismála, menntunar, jafnréttismála og ferðamála.

  • Frá fundi utanríkisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands - mynd
  • Þórdís Kolbrún og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta