Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1150/2022 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2023:
Vöruliður: |
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
kg |
% |
kr./kg |
|||
0201/0202 |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst |
01.01. – 30.06.23 |
348.000 |
0 |
0 |
0203 |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst |
01.01. - 30.06.23 |
350.000 |
0 |
0 |
0207 |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst |
01.01. - 30.06.23 |
428.000 |
0 |
0 |
ex0207 |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu |
01.01. - 30.06.23 |
100.000 |
0 |
0 |
0210 |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum |
01.01. - 30.06.23 |
50.000 |
0 |
0 |
ex 0406 |
Ostur og ystingur (**) |
01.01. - 30.06.23 |
115.000 |
0 |
0 |
0406 |
Ostur og ystingur |
01.01. - 30.06.23 |
190.000 |
0 |
0 |
1601 |
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum |
01.01. - 30.06.23 |
125.000 |
0 |
0 |
1602 |
Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum |
01.01. - 30.06.23 |
200.000 |
0 |
0 |
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Vörumagni vegna ársins 2023 er úthlutað í tvennu lagi, þ.e. því er skipt upp í tvö tímabil.
Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:
Leiðbeiningar tollkvóti (PDF)
Vefkerfi fyrir úthlutun tollkvóta (PDF)
Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; mánudaginn 24. október 2022 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 7. nóvember 2022.
Matvælaráðuneytinu,
21. október 2022.