Berglind tekur sæti í stjórn Matvælasjóðs
Berglind er ráðin aðstoðarmaður matvælaráðherra til 1. mars eða þar til Iðunn Garðarsdóttir snýr aftur úr fæðingarorlofi. Berglind er með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands og á að baki fjölbreytta starfsreynslu í fjölmiðlum, viðburðastjórnun, ferðaþjónustu og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Berglind hefur rekið fyrirtækið Havarí frá árinu 2009 ásamt eiginmanni sínum heitnum, Svavari Pétri Eysteinssyni, tónlistarmanni og hönnuði. Berglind var einnig um tíma verkefnastjóri yfir verkefninu Lífrænt Ísland.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla. Stjórn Matvælasjóðs er þannig skipuð:
Margrét Hólm Valsdóttir, án tilnefningar, formaður.
Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
Berglind Häsler, án tilnefningar.
Í ágúst 2022 hlutu 62 verkefni styrk úr sjóðnum þegar matvælaráðherra úthlutaði 584,6 milljónum til 58 verkefna. Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næstu úthlutun úr sjóðnum á vormánuðum 2023.
Heimasíða Matvælasjóðs.