Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Notendaráð heilbrigðisþjónustu skipað í fyrsta sinn

Notendaráð heilbrigðisþjónustu skipað í fyrsta sinn - myndStjórnarráðið

Heilbrigðisráðherra hefur skipað notendaráð heilbrigðisþjónustu. Ráðið er skipað samkvæmt tilnefningum sjúklingasamtaka og er tilgangur þess að tryggja að sjónarmið notenda séu höfð til hliðsjónar við ákvarðanatöku um atriði sem varða hagsmuni sjúklinga innan heilbrigðisstofnana.

Skipun notendaráðs heilbrigðisþjónustu er nýmæli. Ákvæði um ráðið og hlutverk þess var bundið í lög með breytingum á lögum um heilbrigðisþjónustu sem samþykktar voru á Alþingi í júní síðastliðnum.

Í notendaráði sitja sjö fulltrúar notenda sem sjúklingasamtök tilnefna, auk varamanna. Notendaráði er ætlað að veita forstjórum heilbrigðisstofnana og stjórn, þegar það á við, ráðgjöf og aðhald með virku samráði til að tryggja að sjónarmið notenda komi til skoðunar við ákvarðanatöku um skipulag og rekstur heilbrigðisstofnana. Þannig skal yfirstjórn heilbrigðisstofnunar tryggja samráð við notendaráðið við ákvarðanatöku um atriði er varða hagsmuni sjúklinga innan viðkomandi heilbrigðisstofnunar.

Fulltrúar í notendaráði eru skipaðir til tveggja ára í senn. Gert er ráð fyrir að það verði breytilegt frá einum tíma til annars hvaða sjúklingafélög eigi fulltrúa í ráðinu.

Ráðið er þannig skipað:

  • Héðinn Unnsteinsson, tilnefndur af Geðhjálp
  • Halla Þorvaldsdóttir, tilnefnd af Krabbameinsfélaginu
  • Daníel Ómar Viggósson, tilnefndur af Umhyggju, félagi langveikra barna
  • Hjördís Ýrr Skúladóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
  • Vilhjálmur Hjálmarsson, tilnefndur af Öryrkjabandalagi Íslands
  • Sigrún Birgisdóttir, tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp
  • Kristín I. Pálsdóttir, tilnefnd af Rótinni

Varamenn

  • Guðrún Þórsdóttir, tilnefnd af Geðhjálp
  • Þorri Snæbjörnsson, tilnefndur af Krabbameinsfélaginu
  • Fríða Björk Arnardóttir, tilnefnd af Umhyggju, félagi langveikra barna
  • Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
  • Unnur Helga Óttarsdóttir, tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp
  • Helga Baldvinsd. Bjargardóttir, tilnefnd af Rótinni.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta