Frumvarp um hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í samráð
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Með frumvarpinu er lögð til undanþága frá almennri reglu um 70 ára hámarksaldur ríkisstarfsmanna þannig að heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur við klínísk störf verði kleift að starfa til 75 ára aldurs á grundvelli ráðningarsamnings.
Horft er til þess að með sveigjanlegum starfslokum og bættum réttindum þeim tengdum kjósi fleiri að starfa við heilbrigðisþjónustu eftir sjötugt en að óbreyttu. Frumvarpið er til þess fallið að stuðla að bættri mönnun heilbrigðisþjónustunnar þannig að kraftar þeirra sem vilja og hafa heilsu til fái sín notið. Bætt mönnun getur aukið gæði heilbrigðisþjónustunnar og þar með öryggi sjúklinga.
Samkvæmt gildandi lögum er heilbrigðisstofnunum ríkisins skylt að segja starfsfólki sínu upp störfum við 70 ára aldur. Kjósi viðkomandi að starfa áfram er það einungis mögulegt á grundvelli tímavinnusamnings eða verktakasamnings. Með breytingunni verður unnt að bjóða sanngjörn kjör með ráðningarsamningi og réttarstaða viðkomandi verður betri.
Meginefni frumvarpsins:
- Opinberum heilbrigðisstofnunum verður heimilt að gera tímabundinn ráðningarsamning við heilbrigðisstarfsfólk sem náð hefur sjötugsaldri og hefur vilja og heilsu til að vinna við klínísk störf.
- Starf viðkomandi getur falist að hluta eða öllu leyti í handleiðslu yngra heilbrigðisstarfsfólks og nema.
- Hlutaðeigandi starfsmaður á rétt á að greiða í séreignasjóð lífeyrisréttinda og fá mótframlag launagreiðanda á sama hátt og heilbrigðisstarfsfólk undir sjötugu.
- Ekki er gert ráð fyrir að heilbrigðisstarfsfólk eldra en 70 ára greiði í samtryggingarsjóð lífeyrisréttinda, enda nær lagaskylda til þess einungis til þeirra sem eru yngri en sjötugir.
- Gildir ekki um ráðningar í stöður yfirmanna eða annarra stjórnenda hjá hinu opinbera.
Frestur til að skila umsögnum um frumvarpsdrögin er til 6. janúar 2023