Græni dregillinn fundar í fyrsta skipti - stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænar nýfjárfestingar
Stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænar nýfjárfestingar eða Græni dregillinn, kom saman í fyrsta skipti í Grósku á mánudag. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipaði stýrihópinn í síðasta mánuði.
Græna dreglinum er ætlað að efla stuðning við aðila sem sýna áhuga á að ráðast í loftslagstengd græn nýfjárfestingarverkefni á Íslandi. Markmið Græna dregilsins er að framfylgja stefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs t.a.m. á sviði útflutnings, erlendrar fjárfestingar, nýsköpunar, orkumála, loftslagsmála og sjálfbærni. Jafnframt að fjölga störfum með áherslu á græna nýsköpun, aukna framleiðni og virkjun hugvits til þess að stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi. Fyrir liggur að allmörg nýfjárfestingarverkefni eru í athugun víðs vegar um landið. Eitt af fyrstu verkefnum stýrihópsins verður að móta umgjörð um græna iðngarða og aðra græna atvinnuuppbyggingu í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
„Það er mikilvægt að stuðla að auknum fjárfestingum í verkefnum sem leggja sitt af mörkum til að ná fram markmiðum stjórnvalda um minni losun gróðurhúsalofttegunda, hringrásarhagkerfi og kolefnishlutleysi. Við sem þjóð höfum dregist aftur úr hvað varðar stuðningsumhverfi við nýfjárfestingarverkefni og því er nauðsynlegt að gera betur með aukinni samvinnu ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila. Ég hef trú á að græni dregillinn muni ná að efla atvinnulífið, auka samkeppnishæfni Íslands og treysta byggð á landsbyggðinni með grænum nýfjárfestingum og uppbyggingu grænna iðngarða.“
Diljá Mist Einarsdóttir er formaður stýrihópsins:
„Ég hlakka að starfa með þessu öfluga fólki og hef mikla trú á því að við getum stórbætt ferla og þjónustu við umhverfis- og loftslagsvæn nýfjárfestingaverkefni,“ segir Diljá Mist.
Aðrir sem skipa stýrihópinn eru þau:
Halla Sigrún Sigurðardóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
Guðlaug Guðjónsdóttir, Skattinum
Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun
Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun
Hugrún Geirsdóttir, Umhverfisstofnun
Ragnar G. Kristjánsson, utanríkisráðuneytinu
Eggert Benedikt Guðmundsson, forsætisráðuneytinu
Ólafur Heiðar Helgason, fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Sigríður Valgeirsdóttir, háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu
Arnheiður Ingjaldsdóttir, innviðaráðuneytinu
Ingvi Már Pálsson, menningar- og viðskiptaráðuneytinu
Björn Helgi Barkarson, matvælaráðuneytinu
Pétur Óskarsson, Íslandsstofu
Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkustofnun
Hrönn Hrafnsdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga