Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Jón Helgi Björnsson nýr stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðs

Jón Helgi Björnsson - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað Jón Helga Björnsson sem formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs frá og með 1. janúar 2023. Jón Helgi er líffræðingur að mennt og með MBA gráðu frá University of Manchester. Hann starfar sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og hefur langa reynslu af stjórnun í opinberum rekstri og í atvinnulífinu. Jón Helgi er búsettur á Laxamýri í Þingeyjarsýslu.

Jón Helgi tekur við stöðu stjórnarformanns af Auði H. Ingólfsdóttur sem lét af störfum um áramótin að eigin ósk. Auður hefur gengt starfi stjórnarformanns frá mars 2020 á miklum mótunartíma í starfi þjóðgarðsins og mun hún á næstu misserum koma fyrir hönd ráðuneytisins að öðrum verkefnum sem tengjast þjóðgarðinum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta