Grímur Hergeirsson skipaður lögreglustjóri á Suðurlandi
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Grím Hergeirsson í embætti lögreglustjóra á Suðurlandi frá 1. apríl nk. Grímur hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurlandi síðan 1. júlí 2022. Jafnframt því hefur hann gegnt starfi sínu sem lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum. Staða lögreglustjórans í Vestmannaeyjum hefur nú verið auglýst og er umsóknarfrestur til 4. febrúar. Skipað verður í þá stöðu frá og með 1. apríl næstkomandi.
Grímur Hergeirsson hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík 1996 og var hjá lögreglunni á Selfossi 1997-2000. Árið 2001 var hann kennari við Lögregluskóla ríkisins. Á árunum 2002-2004 var hann rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Selfossi en varðstjóri í almennri deild síðasta árið. Á árunum 2005-2007 vann Grímur hjá Sveitarfélaginu Árborg, sem verkefnastjóri íþrótta-, forvarna og menningarmála. Frá útskrift með meistarapróf í lögfræði frá HÍ 2009 til ársins 2014 var Grímur starfandi lögmaður í samstarfi við aðra. Hann var löglærður fulltrúi í um 9 mánuði hjá sýslumanninum á Selfossi á árunum 2014-2015. Árið 2015 færði hann sig til lögreglustjórans á Suðurlandi og var fyrst rannsóknarlögreglumaður, síðar löglærður fulltrúi ákærusviðs, en frá 2017 staðgengill lögreglustjóra og yfirmaður ákærusviðs embættisins. Grímur var settur lögreglustjóri á árinu 2020, fyrst á Suðurlandi og síðan á Suðurnesjum en frá nóvember 2020 hefur hann verið skipaður lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og frá júlí á síðasta ári verið settur lögreglustjóri á Suðurlandi. Eins og áður sagði hefur staða lögreglustjórans í Vestmannaeyjum nú verið auglýst.