Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu 2023 lausir til umsóknar
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðisráðuneytið veitir árlega styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustunni. Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna og tæknilausna sem stuðlað geta að umbótum, nýbreytni, innleiðingu eða auknum gæðum heilbrigðisþjónustunnar.
Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir á sviði heilbrigðismála geta sótt um en styrkveiting er háð því skilyrði að viðkomandi umsóknaraðili sé í samvinnu eða fyrirhugaðri samvinnu við heilbrigðisstofnanir.
Styrkjum er úthlutað til verkefna sem hafa skýran ávinning fyrir heilbrigðisþjónustuna og þann hóp sem þjónustan beinist að. Í ár er lögð áhersla á verkefni sem stuðla að jöfnu aðgengi og umbætur í bráðaþjónustu.
Starfshópur sem metur umsóknir mun leggja áherslu á:
- verkefni sem hafa það að markmiði að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu og stuðla að aukinni notkun stafrænna lausna, með sérstaka áherslu á fjarheilbrigðisþjónustu, sbr. aðgerð A.5 í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036.
- verkefni sem styðja við eftirfylgni með tillögum viðbragðsteymis ráðuneytisins um umbætur í bráðaþjónustu á landsvísu.
Heildarfjárhæð styrkja er 55 milljónir króna. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 28. febrúar 2023.