Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Listi yfir forstöðumenn 1. febrúar 2023

Listi yfir forstöðumenn skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
nr. 70/1996 með síðari breytingum.

Í 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum eru taldir upp í 14 töluliðum þeir sem teljast embættismenn samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. segir að ráðherra skeri úr því hvaða starfsmenn falli undir 13. tölulið þessarar greinar, þ.e. forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem ekki eru taldir sérstaklega upp í 1. - 12. og 14. tölulið. Jafnframt segir að ráðherra skuli fyrir 1. febrúar ár hvert birta í Lögbirtingablaði lista yfir þá starfsmenn.
Listinn fyrir árið 2023 er svohljóðandi:

Dómsmálaráðuneytið
Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands
Forstjóri Persónuverndar
Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar
Héraðssaksóknari

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
Forstjóri Vinnumálastofnunar
Forstjóri þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Forstöðumaður Fjölmenningarseturs
Umboðsmaður skuldara

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjársýslustjóri
Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
Forstjóri Bankasýslu ríkisins
Forstjóri Framkvæmdasýslu-Ríkiseigna
Forstjóri Ríkiskaupa

Forsætisráðuneytið
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
Hagstofustjóri
Seðlabankastjóri Seðlabanka Íslands

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Forstjóri Fjarskiptastofu
Forstjóri Hugverkastofunnar
Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands
Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna
Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Rektor Háskóla Íslands
Rektor Háskólans á Akureyri
Rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum
Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

Heilbrigðisráðuneytið
Forstjóri Geislavarna ríkisins
Forstjóri Landspítalans
Forstjóri Lyfjastofnunar
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Forstjóri Sjúkratryggingastofnunar
Forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands
Landlæknir

Innviðaráðuneytið
Forstjóri Byggðastofnunar
Forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Forstjóri Samgöngustofu
Forstjóri Skipulagsstofnunar
Forstjóri Vegagerðarinnar
Forstjóri Þjóðskrár Íslands
Rekstrarstjóri rannsóknarnefndar samgönguslysa

Matvælaráðuneytið
Fiskistofustjóri
Forstjóri Matvælastofnunar
Forstöðumaður Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna
Landgræðslustjóri
Skógræktarstjóri

Menningar- og viðskiptaráðuneytið
Ferðamálastjóri
Forstjóri Neytendastofu
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands
Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands
Forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Landsbókavörður
Listdansstjóri Íslenska dansflokksins
Safnstjóri Listasafns Íslands
Safnastjóri Náttúruminjasafns Íslands
Þjóðleikhússtjóri
Þjóðminjavörður
Þjóðskjalavörður

Mennta- og barnamálaráðuneytið
Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu
Forstjóri Gæða- og eftilitsstofnun velferðarmála
Forstjóri Menntamálastofnunar
Forstöðumaður Ráðgjafar- og greiningarstöðvar
Skólameistari Borgarholtsskóla
Skólameistari Flensborgarskóla
Skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands
Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum
Skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Skólameistari Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu
Skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum
Skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
Skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum
Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði
Skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga
Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
Skólameistari Menntaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð
Skólameistari Menntaskólans við Sund
Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands
Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Forstjóri Íslenskra orkurannsókna
Forstjóri Landmælinga Íslands
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
Forstjóri Umhverfisstofnunar
Forstjóri Veðurstofu Íslands
Forstöðumaður Minjastofnunar Íslands
Forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs
Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
Orkumálastjóri

 


Fjármála- og efnahagsráðuneytið, 2. janúar 2023.


F.h.r.

Aldís Magnúsdóttir Sonja María Hreiðarsdóttir


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta