Umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu
Alls bárust sjö umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra menningar- og viðskiptaráðuneytisins, en staðan var auglýst þann 27. desember 2022 og umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar 2023.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
- Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum
- Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri
- Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fv. sparisjóðsstjóri
- Gísli Halldór Halldórsson, fv. bæjarstjóri
- Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri
- Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri
- Þröstur Óskarsson, sérfræðingur
Þriggja manna hæfnisnefnd hefur verið skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra til að meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.
Formaður hæfnisnefndarinnar er Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar og ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, og aðrir nefndarmenn eru Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkissáttasemjari og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu.
Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá og með 1. mars 2023.