Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Matvælakjarni á Vopnafirði

Frá vinstri: Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps við undirritun samningsins. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps og Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, hafa undirritað samning um að koma á fót matvælakjarna á Vopnafirði.

Matvælakjarni er vottað vinnslurými þar sem frumkvöðlar og smáframleiðendur hafa aðgang að aðstöðu til að framleiða og þróa vörur. Með þessu er ætlunin að auka neyslu afurða úr nærsamfélaginu og auðvelda smáframleiðendum að þróa hugmyndir sínar til nýsköpunar og nýtingar hráefnis úr héraði.

Verkefnið er hluti af áætluninni Minni matarsóun - Aðgerðaáætlun gegn matarsóun, sem gefin var út á árinu 2021 sem og stefnumótandi byggðaáætlun 2022-2036

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ég legg mikla áherslu á mikilvægi hugvits og nýsköpunar þegar kemur að því að ná árangri í umhverfismálum og er ánægður að ráðuneytið geti stutt við frumkvöðla með þessum hætti, í góðu samstarfi við sveitarfélagið. Við eigum að stefna að fullnýtingu allra hráefna. Íslendingar hafa verið í forystu í fullnýtingu sjávarafurða og við þurfum að ná sama árangri í öðrum greinum.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta