Vill efla sjúkrahúsþjónustu í dreifbýli
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett á fót verkefni sem miðar að því að tryggja nauðsynlega mönnun sérhæfðs starfsfólks sjúkrahúsanna í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða og Austurlands. Meðal annars er stefnt að því að koma á samstarfi með formlegum samningum milli heilbrigðisstofnana í þessum umdæmum og Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.
Ráðherra hefur skipað starfshóp sem starfar undir verkefnaheitinu öflug sjúkrahúsþjónusta í dreifbýli og er ætlað að vinna tillögur um samvinnu og ýmsar aðgerðir til að halda úti nauðsynlegri bráðaþjónustu á fyrrnefndum svæðum. Í verkefninu hafa Vestfirðir og Austurland sérstöðu með tilliti til reksturs heilbrigðisþjónustu vegna þess hve langt er í sérhæfðar bjargir. Vegna þessa verða til skoðunar lausnir sem einungis eru taldar eiga við í þessum heilbrigðisumdæmum og önnur svæði geta ekki gert tilkall til á sama hátt.
Áhersla verður lögð á að nýta til verkefnisins fjármagn sem er fyrir hendi hjá hlutaðeigandi stofnunum en þó er gert ráð fyrir að einhverjar tillögur gætu kallað á aukið fjármagn. Meðal annars verður skoðað hvort unnt sé að leita eftir ýmsum styrkjum sem tengjast Byggðaáætlun eða sambærilegra verkefna.
Starfshópinn skipa:
- Tómas Þór Ágústsson, tilnefndur af Landspítala, formaður
- Helga Harðardóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu
- Berglind Harpa Svavarsdóttir, tilnefnd af Samtökum sveitarfélaga á Austfjörðum - Austurbrú
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, tilnefnd af Samtökum sveitarfélaga á Vestfjörðum - Vestfjarðarstofu
- Óskar Örn Óskarsson, tilnefndur af Félagi sjúkrahúslækna
- Lovísa Agnes Jónsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
- Guðjón Hauksson, tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Austurlands
- Gylfi Ólafsson, tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
- Ragnheiður Halldórsdóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri