Rauði krossinn fær 28 milljónir til að mæta kóleru í Malaví
Utanríkisráðuneytið hefur veitt Rauða krossinum 28 milljón króna viðbótarframlag í gegnum rammasamning um mannúðaraðstoð til að fjármagna verkefni Rauða krossins í Mangochi-héraði í Malaví til að bregðast við kólerufaraldri, þeim versta sem hefur geisað í landinu í tvo áratugi.
„Rauði krossinn á Íslandi hefur starfað náið með Rauða krossinum í Malaví að margs konar uppbyggingar- og mannúðarverkefnum á undanförnum tuttugu árum,“ segir Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins. „Með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu og aðstoð Mannvina Rauða krossins höfum við séð jákvæðan árangur af starfi okkar, sem er borið uppi af sjálfboðaliðum Rauða krossins í Malaví. Við höfum séð jákvæða þróun varðandi til dæmis jafnrétti kynjanna, aukna vernd stúlkna og kvenna, bætt fæðuöryggi og aðgengi að vatni og hreinlæti. Hins vegar teflir kólerufaraldur á borð við þennan árangrinum í tvísýnu og þess vegna er mikilvægt að sporna við honum hratt og vel. Framlag utanríkisráðuneytisins kemur sér því einstaklega vel fyrir systkini okkar í Malaví sem standa frammi fyrir þessum áskorunum,“ segir Atli í frétt frá Rauða krossinum á Íslandi.
Fyrstu smitin voru tilkynnt í febrúar 2022 á Machinga-svæðinu, en í mars á síðasta ári var faraldri lýst yfir. Þurrkar og næringarskorturinn sem þeim fylgir hafa haft mikil áhrif á stór svæði í Malaví og gert samfélögin, og sérstaklega börn, berskjölduð og aukið líkur á að þau láti lífið í faraldrinum. Í lok janúar höfðu 1108 manns látist og yfir 34 þúsund veikst og sem stendur eru flestir veikir í Mangochi-héraði.
Malaví er landlukt land sem deilir landamærum með Mósambík, Sambíu og Tansaníu í suðurhluta Afríku. Það er eitt fátækasta land heims, þrátt fyrir verulegar umbætur í efnahags og skipulagsmálum til að stuðla að hagvexti á síðustu áratugum, sem hafa verið studdar af utanríkisráðuneytinu í gegnum sendiráð Íslands í höfuðborginni, Lilongve. Yfir 80 prósent íbúa starfa við landbúnað og atvinnulífið er afar viðkvæmt fyrir utanaðkomandi áföllum.
Frá árinu 2016 hefur starf Rauða krossins á Íslandi í Malaví snúist um að efla seiglu samfélagsins á ýmsan hátt með fjárhagslegum stuðningi frá utanríkisráðuneyti og í samstarfi við önnur landsfélög Rauða krossins. Þetta hefur verið gert með því að stuðla að lýðheilsu, inngildingu og valdeflingu og auka aðgang að hreinu vatni, auka hreinlæti og draga úr hættu á hamförum. Verkefni Rauða krossins hafa stuðlað að aukinni bólusetningartíðni hjá börnum yngri en fimm ára, aukinni viðurkenningu á getnaðarvörnum og stutt skólagöngu stúlkna og ungmenna.