Rúmlega 93 milljónum úthlutað til þróunarverkefna búgreina
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað rúmum 93 milljónum króna til 27 þróunarverkefna í landbúnaði. Um er að ræða tólf verkefni í sauðfjárrækt, níu í nautgriparækt og sex í garðyrkju.
Úthlutunin er gerð að tillögu fagráða viðkomandi greina og framkvæmdanendar búvörusamninga. Tilgangur framlagsins er að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í fyrrnefndum búgreinum.
„Mikilvægi sjálfbærs landbúnaðar hefur sjaldnast verið meira en nú,“ sagði matvælaráðherra. „Því er mikilvægt að stjórnvöld hlúi að vaxtarsprotum greinarinnar eftir fremsta megni líkt og gert er með þessari úthlutun. Rannsóknir og þekking eru lykilatriði til að tryggja okkar fæðuöryggi til framtíðar“.
Úthlutanir voru sem hér segir:
Garðyrkja
Umsækjandi |
Verkefni |
4pphæð |
Bændasamtök Íslands |
Erlendir garðyrkjuráðunautar |
24.186.648 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Jörð.is - Snjalltækjavæðing |
1.041.333 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Kynnisferð til Danmerkur - kartöflubændur |
2.558.000 kr. |
Matís ohf |
Grænmetisbókin - Vefrit Frá uppskeru til neytenda |
1.150.720 kr. |
Þórustaðir ehf |
Kartöflur með lægra kolvetnisinnihald |
1.000.000 kr. |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Áhrif lýsingar og CO2 auðgunar á vöxt uppskeru og gæði gróðurhúsatómata |
7.000.000 kr. |
|
Samtals |
36.936.701 kr. |
Sauðfjárrækt
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Lambadómar 2022 |
2.400.000 kr. |
Tilraunastöð HÍ Keldum |
Rannsókn á umhverfissmiti á riðubæjum |
1.255.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Hvatastyrkir vegna arfgerðagreininga 2023 (riðurannsóknir) |
10.070.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Utanumhald um feldfé í Fjárvís |
1.000.000 kr. |
Matís ohf |
Fitusprenging í íslensku lambakjöti |
5.000.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Fjárvís.is Samskipti við jaðartæki - framhald |
4.170.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Afkvæmarannsóknir vegna sæðingastöðvanna 2023 |
725.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Afkvæmarannsóknir bænda á hrútum 2023 |
3.380.000 kr. |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Riðukynbótamat |
4.100.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Jörð.is - Snjalltækjavæðing |
1.000.000 kr. |
Smalahundafélag Íslands SÍF |
Erlendir leiðbeinendur við fjárhundatamningar |
1.200.000 kr. |
Karólína Elísabetardóttir |
Vettvangsferð hóps alþjóðlegra riðusérfræðinga |
300.000 kr. |
|
Samtals |
34.600.000 |
Nautgriparækt
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Jörð.is - Snjalltækjavæðing |
1.041.333 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Bætt uppskeruskráning á korni |
980.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
NorFor 2023 samstarf |
2.568.545 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Endurmenntun í búfjárdómum holdagripa |
949.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Rekstur kúabúa - greining rekstrargagna og eftirfylgni til bænda Framhald |
7.380.000 kr. |
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins |
Huppa.is - mælaborð |
2.325.000 kr. |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Skipulögð yfirsáning grasfræs á tún - leið til að bæta endingu ræktunar |
966.000 kr. |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Dreifðar byggkjarnatilraunir |
3.000.000 kr. |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Beit mjólkurkúa í mjaltaþjónafjósi |
2.513.000 kr. |
|
Samtals |
21.722.878 kr. |