Lokaniðurstöður Auðlindarinnar okkar kynntar í ágúst
Seinni hluta ágúst þessa árs verða niðurstöður starfshópa verkefnisins Auðlindin okkar kynntar. Í framhaldinu verða undirbúnar lagabreytingar sem áætlað er að verði lagðar fram á vorþingi 2024.
Niðurstöðurnar eru afurð vinnu fjögurra starfshópa og samráðsnefndar um sjávarútvegsstefnu sem Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra skipaði í júní 2022, m.a. til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum.
Starfshóparnir hafa greint áskoranir og tækifæri á afmörkuðum sviðum; samfélagi, aðgengi, umgengni og tækifærum og eru, ásamt samráðsnefnd, skipuð samkvæmt sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks frá 28. nóvember 2021.