Hoppa yfir valmynd
2. júní 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Opið málþing um gervigreind, siðferði og samfélag

Mánudaginn 5. júní fer fram málþing í Veröld - Húsi Vigdísar undir yfirskriftinni Gervigreind, siðferði og samfélag. Málþingið er á vegum landsnefndar UNESCO í samvinnu við Háskóla Íslands og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Í nóvember 2021 samþykktu 193 aðildarríki á aðalráðstefnu UNESCO Tilmæli um siðferði gervigreindar, þar sem mörkuð voru, í fyrsta sinn, alþjóðlega viðurkennd siðferðileg viðmið um þróun og nýtingu gervigreindartækni og lagður grunnur að leiðarvísi fyrir ábyrga stefnumótun um efnið. Tilmælin hafa það meginmarkmið að standa vörð um mannréttindi og mannlega reisn og stuðla að því að hin nýja tækni verði notuð í þágu alls mannkyns. Á málþinginu verður velt upp margvíslegum spurningum um gervigreind, siðferði og samfélag. Rýnt verður í hvernig gervigreindin er að ryðja sér rúms á öllum sviðum samfélagsins, jafnt á vinnumarkaði sem í háskólastarfi og spurt verður hvernig stjórnvöld, háskólar og atvinnulíf geti brugðist við þeirri þróun.

Málþingið fer fram mánudaginn 5. júní frá kl. 13 til 16.30 í Veröld, Háskóla Íslands, og stendur öllum opið. Sýnt verður frá viðburðinum í Streymi og verður hægt að fylgjast með útsendingunni á vef Stjórnarráðsins. 

Dagskrá:

  • 13.00 – 13.10 Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, setur málþingið
  • 13.10 – 13.20 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp
  • 13.20 – 13.40 Páll Rafnar Þorsteinsson, verkefnisstjóri við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands -  Gervigreind, mannlegt siðferði: Raunverulegar áskoranir
  • 13.40 – 14.00 Yngvi Björnsson, prófessor við Tölvunarfræðideild HR - 
    Útskýranleg gervigreind: hvað er það og hvers vegna?
  • 14.00 – 14:20 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands - Notkun gervigreindar við stjórnun og nýráðningar: Áskoranir samtímans
  • Kaffi
  • 14.40 – 14.55 Hafsteinn Einarsson, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands - Hagnýting á gervigreind í kennslu.
  • 14.55 – 15:10 Sigyn Jónsdóttir, CTO hjá Empower - Að samtvinna gervigreind og fjölbreytileika
  • 15:10 – 15.25 Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar - Persónuvernd og gervigreind
  • 15:25 Pallborð með þátttöku fyrirlesara, Páls Ásgeirs Guðmundssonar, forstöðumanns efnahags- og samkeppnishæfnisviðs SA, Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna, og Kolbrúnar Halldórsdóttur, formanns BHM.
  • 16:00 – 16:15 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, flytur lokaorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta