Hoppa yfir valmynd
19. júní 2023 Dómsmálaráðuneytið

Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við embætti dómsmálaráðherra

Guðrún Hafsteinsdóttir hefur tekið sæti sem dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Guðrún tók við lyklavöldum í dómsmálaráðuneytinu á mánudag af Jóni Gunnarssyni sem gegnt hefur embætti dómsmálaráðherra í 18 mánuði.

Guðrún er fædd á Selfossi 9. febrúar 1970. Hún lauk BA-próf í mannfræði HÍ 2008 og diplóma í hagnýtri jafnréttisfræði HÍ 2011. Guðrún starfaði um árabil hjá fjölskyldufyrirtækinu Kjörís í Hveragerði. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnarstarfa í fyrirtækjum og félögum og var um árabil atkvæðamikil innan Samtaka atvinnulífsins, hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna og Landssamtökum lífeyrissjóða.

Guðrún hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem fyrsti þingmaður Suðurlands frá kosningum árið 2021 og tók við embætti dómsmálaráðherra þann 19. júní 2023.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta