Sex sóttu um embætti ríkissáttasemjara
Sex sóttu um embætti ríkissáttasemjara sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í byrjun júní sl.
Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:
- Aldís Guðný Sigurðardóttir, lektor við viðskiptadeild HR og forstöðumaður MBA-náms
- Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari
- Hilmar Már Gunnlaugsson, lyfjafræðingur
- Maríanna Hugrún Helgadóttir, formaður og framkvæmdastjóri Félags íslenskra náttúrufræðinga
- Muhammad Abu Ayub, vaktstjóri
- Skúli Þór Sveinsson, sölumaður
Hæfni umsækjenda verður metin af ráðgefandi hæfnisnefnd sem skipuð er á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Félags- og vinnumarkaðsráðherra mun skipa í embættið til fimm ára.