Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli.
Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. júlí 2023:
- Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 0,99%, úr 124,96 kr./ltr í 126,20 kr./ltr.
Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. júlí 2023:
- Heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli hækkar um 0,88%, úr 140,48 kr./ltr í 141,72 kr./ltr.
Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun í mars 2023. Frá síðustu verðákvörðun til júnímánaðar 2023 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 0,99%. Heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli hækkar um það sem nemur kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa. Heildsöluverð á öðrum mjólkurvörum verður óbreytt.