Hoppa yfir valmynd
24. júní 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Starfshópur skipaður um gjaldtöku á erlendar streymisveitur

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp um gjaldtöku á erlendar streymisveitur.

Hópnum er ætlað að skoða gjaldtöku á fjölmiðlaveitur sem miðla myndefni eftir pöntun, sem oft er talað um sem streymisveitur, og hinna svokölluðu erlendu tæknirisa. Innlendir fjölmiðlar hafa kallað eftir því að tekið verði til skoðunar samkeppnisumhverfi innlendra og erlendra fjölmiðlaveitna og þá sérstaklega með tilliti til skattaumhverfis þessara aðila.

Hópinn skipa María Rún Bjarnadóttir (formaður), Heiðdís Lilja Magnúsdóttir fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytis og Vilmar Freyr Sævarsson, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytis. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta