Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2023
Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2023 hefur verið birt ásamt fylgiskjölum á vef nefndarinnar. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahagsmála og launa á tímabilinu mars 2019 til janúar 2023.
Kjaratölfræðinefnd gefur út tvær skýrslur á ári og er þetta sjötta skýrsla nefndarinnar. Skýrslan skiptist í tiltekna meginkafla sem fjalla um kjarasamninga gerða í yfirstandandi kjaralotu, efnahagsmál, launaþróun og launastig sem flokkað er eftir heildarsamtökum launafólks annars vegar og atvinnurekendum hins vegar. Einnig er í skýrslunni að finna samanburð á launum karla og kvenna. Í umfjölluninni er áherslan að mestu leyti á nýliðna kjaralotu en einnig að nokkru leyti á upphaf nýrrar kjaralotu á almennum markaði.
Kjaratölfræðinefnd hóf störf í desember 2019 og er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Markmið nefndarinnar er að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar og sameiginlegur skilningur aðila um laun og efnahag sem nýtast við undirbúning og eftirfylgni kjarasamninga á hverjum tíma.