Ólafur Baldursson leiðir verkefni um framtíð læknisþjónustu á Íslandi
Hans hlutverk er að tryggja samhæfingu og samþættingu verkefnisins með viðeigandi aðkomu, samþykki og þátttöku haghafa. Ólafur hefur fengið ársleyfi frá stjórnunarstörfum á Landspítala til að vinna við þetta umfangsmikla og mikilvæga verkefni.
Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við Landspítala, aðrar heilbrigðisstofnanir og hagaðila og með Landsráði um mönnun og menntun heilbrigðisstarfsfólks, en á ábyrgð ráðherra innan skrifstofu innviða í heilbrigðisráðuneyti.
Ólafur lauk sérnámi í lyf- og lungnalækningum frá Háskólasjúkrahúsinu í Iowa City í Bandaríkjunum árið 2000 og doktorsprófi frá Háskóla Íslands 2004. Hann hefur einnig lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu. Ólafur hefur stundað lækningar, kennslu- og vísindastörf og birt allmargar vísindagreinar á innlendum og erlendum vettvangi. Hann hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum innan Landspítala og hefur síðastliðið ár starfað við breytingastjórnun á Karolinska-háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi.