Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga haldinn 20. september
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 20. september nk. á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík. Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.
Fundurinn hefst kl. 16:00 en dagskrá verður auglýst nánar síðar.