Ráðstefna um umhverfisáhrif sjávarafurða og orkuskipti í fiskveiðum
Miðvikudaginn 13. september nk. mun Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setja ráðstefnu á vegum Matís um umhverfisáhrif sjávarafurða og orkuskipti í fiskveiðum.
Á ráðstefnunni halda helstu sérfræðingar Norðurlanda á sviði sjálfbærni og orkuskipta í sjávarútvegi erindi þar sem fjallað verður um viðfangsefnið frá mörgum hliðum í spennandi dagskrá:
- Fulltrúar Brims og Royal Greenland munu fjalla um hvað þeirra fyrirtæki eru að gera í umhverfismálum og orkuskiptum.
- Dr. Friederike Ziegler frá RISE í Svíþjóð fjallar um hvernig Evrópusambandið hyggst leggja áherslu á samdrátt í CO2 losun frá sjávarútvegi.
- Ditte Stiler frá Norrænum orkurannsóknum mun fjalla um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á Norðurlöndum í orkuskiptum fiskiskipa og hafna.
- Dr. Ole Ritzau Eignaard frá DTU í Danmörku mun fjalla um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á botnraski við togveiðar og það kolefni sem leysist úr læðingi á hafsbotni við veiðarnar.
- Kaj Portin frá Wartsilla í Finnlandi mun fjalla um þróun fyrirtækisins á vélbúnaði fyrir nýja orkugjafa.
Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og hefur meðal annars lagt áherslu á málefni hafsins, sjálfbærni og orkuskipti í sjávarútvegi. Ráðstefnan er hluti þeirrar vinnu og er ætlað að auka norrænt samstarf á þessum sviðum.
Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu, er ókeypis og öllum opin.
Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér, skráning fer fram hér.