Hoppa yfir valmynd
21. september 2023 Dómsmálaráðuneytið

Björg Ásta Þórðardóttir aðstoðar dómsmálaráðherra

Björg Ásta Þórðardóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra.

Björg Ásta lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2014 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2015. Björg hefur starfað sem yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins frá árinu 2015 og starfaði þar áður sem lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda og fulltrúi hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur. Þá starfaði hún hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Hún hefur jafnframt starfað í fjölmörgum stjórnum og nefndum á vegum stjórnvalda og í atvinnulífinu.

Björg er fædd og uppalin á Suðurnesjum og á að baki farsælan knattspyrnuferil með íslenskum knattspyrnuliðum og landsliðinu. Björg hefur sinnt sjálfboðaliðastarfi á sviði íþróttamála og situr nú í dómstól ÍSÍ og í aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Þá hefur Björg verið virk í félagsstarfi og sinnt formennsku í MS-félagi Íslands.

Björg Ásta er búsett á Suðurnesjum þar sem hún er fædd og uppalin. Hún er í sambúð með Ósk Laufeyju Breiðfjörð og eiga þær þrjú börn.

Björg hefur þegar tekið til starfa en þess ber að geta að Hreinn Loftsson hefur látið af störfum sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta