Opinn fundur um hágæða grænar samgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkur
Innviðaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Kadeco, Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum standa sameiginlega að opnum fundi um góðar og umhverfisvænar samgöngur milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins. Ræða á sameiginlega framtíðarsýn, raunhæfni og mögulegar lausnir á þeim áskorunum sem blasa við. Erlendir gestafyrirlesarar gefa innsýn í svipuð verkefni sem borgir í Evrópu hafa ráðist í og einnig verður tekinn púls á þeim möguleikum sem bjóðast hjá aðilum sem vinna um allan heim að stórum innviðaverkefnum með áherslu á vistvænni samgöngur.
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá innviðaráðuneytinu, verður með erindi og Árni Freyr Stefánsson, skrifstofustjóri samgangna hjá innviðaráðuneytinu, tekur þátt í pallborðsumræðum.
Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 12. október, milli kl. 13 – 17.
Nánari upplýsingar og skráningu er að finna á dagskrársíðu viðburðarins: Opinn fundur um samgöngur til KEF.
Dagskrá:
-
13:00-13:05 Velkomin | Fundarstjóri Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
-
13:05-13:20 Hágæðasamgöngur fyrir heimsborg | Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
-
13:20-13:35 Í átt að öflugri og kolefnishlutlausum almenningssamgöngum til Keflavíkurflugvallar | Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá innviðaráðuneytinu
-
13:35-13:50 Þróunaráætlun Kadeco K64 – Keflavik Reykjavik Link KRL | Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri hjá Kadeco
-
13:50-14:05 Sagan og staðan - flugrúta, fluglest og fleiri hugmyndir | Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
-
14:05-14:35 Pallborð: Hver eru næstu skref?
Þátttakendur í pallborði:
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- Árni Freyr Stefánsson, innviðaráðuneytið
- Samúel Torfi Pétursson, Kadeco
- Bryndís Friðriksdóttir, Vegagerðin.
Umræðustjóri: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
-
14:35-14:50 Hlé
Dagskrá eftir hlé mun fara fram á ensku
-
14:50-15:10 Val á samgöngulausnum - flugvallartengingar og reynslusögur | Thomas Potter, technical expert, Norconsult heldur erindi á ensku
-
15:10-15:25 Grænni og snjallari samgöngur um allan heim | Carl Åge Björgan, framkvæmdastjóri Alstom í Noregi og Íslandi heldur erindi á ensku
-
15:25-15:45 Tengingin milli Helsinki og Vantaa flugvallarins | Henry Westlin, borgarverkfræðingur Vantaa heldur erindi á ensku
-
15:45-16:10 Pallborð: Hvernig gæti framtíðin litið út?
Þátttakendur í pallborði:
- Thomas Potter,
- Carl Åge Björgan og
- Henry Westlin.
Stjórnandi: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur.
Seinni pallborðsumræður fara fram á ensku.
-
16:10-16:15 Lokaorð
-
16:15-17:00 Tengslamyndun og léttar veitingar