Íslendingar í Ísrael verða sóttir
Gert er ráð fyrir að vélin fari frá Tel Aviv klukkan 09:10 að staðartíma í fyrramálið og farþegar verði komnir til Íslands um miðjan dag á morgun. Áætlunin er gerð með þeim fyrirvara að verði breytingar á stöðunni í Ísrael, mun framkvæmdin taka mið af því.
Ísland hyggst bjóða Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum laus sæti í vélinni sem ekki nýtast fyrir íslenska ríkisborgara.