Hoppa yfir valmynd
16. október 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Orkuöryggi og almenningur – málþing um orkumál

Norrænar orkurannsóknir, Norræna ráðherranefndinni og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið standa að málþingi um orkumál og almenning sem haldið verður á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 19. október kl. 9-12.

Orkukreppu gætir á Norðurlöndum og víðar í Evrópu. Þó staðan sé mismunandi eftir löndum, geta vaknað spurningar hjá almenningi og atvinnulífi um hvort framboð á orku verði nægjanlegt? Uppbyggingu orkukosta fylgja hins vegar orkumannvirki sem breytt geta landslagi. Mikilvægt er því að eiga samráð við nærsamfélög. Þátttaka fólks sem og viðhorf þess til nýrrar orkuframleiðslu  getur því haft áhrif og því meiri sem þátttaka borgara er í ferlinu og við skipulagningu því betra.  

Þessar spurninga og fleiri verða til umræðu á fundinum þar sem fjallað verður um nokkur brýnustu orkumál Norðurlanda með umsögnum sérfræðinga, umræðum og pallborðsumræðum.

Þátttaka er ókeypis og eru öll velkomin.

Skráning  fer fram hér:

https://www.eventbrite.dk/e/conference-energy-security-and-citizens-tickets-717668244037?aff=oddtdtcreator

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta